1 4

YOGA DEMOCRACY PRINTED BELL BOTTOMS - HUMBLE WARRIOR

YOGA DEMOCRACY PRINTED BELL BOTTOMS - HUMBLE WARRIOR

15.900 ISK
15.900 ISK
Uppselt
Stærð
  • Búin til úr plastílátum, sem ella hefðu endað líf sitt á ruslahaug í hafinu.
  • Tækni sem hrindir frá svita í tveimur skrefum, þ.e. 1) dregur raka að ytra lagi flíkurinnar og 2) stuðlar að hraðri uppgufun áður en svitanum gefst færi á að setjast í efnið.
  • Einnig hrindir efnið frá sér klóri og olíu, t.d. rakakremi eða sólaráburði, og öðru slíku sem komist getur í snertingu við buxurnar.
  • Efnið verndar húðina fyrir útfjólubláum geislum sólarinnar, en prófun leiddi í ljós að vörnin virkar bæði gegn lengri bylgjum (UVA) sem flýta öldrunarferlinu og styttri bylgum (UVB) sem auka hættu á frumuskemmdum.
  • Léttleika efnisins er ætlað að halda húðinni svalri í gegnum erfiðustu æfingar.
  • Litunarferli án eiturefna tryggir að mynstrið haldist samhliða langvarandi notkun.
  • Sterkustu saumarnir eru staðsettir þannig að auðveldlega megi stytta buxurnar að vild án þess að hafa áhrif á strúktúr þeirra.

 

Yoga Democracy hefur breytt markaðnum fyrir sjálfbæran íþróttafatnað með framúrstefnulegri hönnun, sem sækir innblástur í kjarnahugsjónir jógans um flæði milli umheimsins og innra sálarlífs iðkenda. Fyrirtækið endurvinnur hágæða plast, sem kemur úr drykkjarílátum og veiðinetum, og nýtir allt efnið sem úr því verður en hendir engu. Efnið er síðan litað með aðferð sem ekki þarfnast vatns og verndar þannig viðkvæmar auðlindir jarðarinnar. Framleiðslan á sér stað í heimabæ stofnenda Yoga Democracy í Arizona-fylki Bandaríkjanna og saumaferli hverrar flíkur hefst í höndum sömu manneskjunnar sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun. Loks rennur hluti söluágóðans til hinna ýmsu samtaka sem stuðla að bættum heimi fyrir fólk, dýr og umhverfið - í samræmi við æðri tilgang jógalífsins.