Vöruskil
Skilaréttur:
Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að skila vörunni. Kvittun eða önnur skjöl þurfa að staðfesta að varan hafi verið keypt síðustu 14 daga. Vöru fæst skilað ef hún er í upprunalegu umbúðum og ástandi. Hægt er að skipta vörunni í aðra vöru, fá inneignarnótu eða að fá endurgreiðslu.
Skil á nærbuxum og sokkum er undanskilið þessari reglu en skv. tilmælum heilbrigðiseftirlitsins má ekki skila né skipta nærbuxum og sokkum þar sem innsiglið er rofið.
Útsöluvöru fæst ekki skilað en hægt er að skipta útsöluvöru fyrir aðra útsöluvöru. Eftir að útsölu lýkur fæst útsöluvöru ekki skipt.
Vöru skal skilað í verslun Yoga lífs við Hlíðarsmára 17 á opnunartíma. Sé vara póstlögð ber viðskiptavinur ábyrgð á öllum sendingarkostnaði þ.m.t. útlögðum sendingarkostnaði verslunarinnar Yoga lífs.
Endurgreiðslan fer fram eins fljótt og auðið er en þó ekki síðar en eftir 30 daga.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það um leið og galla er vart með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið Yogalif@yogalif.is. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Gölluð vara er endurgreidd ásamt sendingarkostnaði eða annað eintak af sömu vöru er sent til kaupanda honum að kostnaðarlausu. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup
