1 5

MANDUKA FOUNDATION LEGGINGS - BLACK

MANDUKA FOUNDATION LEGGINGS - BLACK

9.900 ISK
9.900 ISK
Uppselt
Size

Foundation Leggings eru hágæðaæfingabuxur í klassísku sniði (63,5 cm innansaumur), sem búa yfir öllum þeim eiginleikum sem Manduka hefur í hávegum, meðal annars mjúku efni og þægilegum stuðningi sem mótar neðri hluta líkamans án þess að hamla hreyfigetu. Loks er að finna innhverfan vasa á bakhlið buxnanna svo ekki þarf að hafa áhyggjur af farsíma, skápalyklum eða öðrum eigum meðan á æfingu stendur. 

Nánar um vöruna:

  • Tækni sem tryggir mestu mögulegu rakastjórnun og heldur svitalykt í skefjum, auk þess að hafa kælandi áhrif á húðina.
  • Yfirborðið er slípað og þar af leiðandi ofurmjúkt viðkomu.
  • Búin til úr endurunnu plasti, lífrænni bómull og plöntuefnum.

Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.

Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Allur fatnaður frá Manduka er búinn til úr endurunnu plasti í bland við sjálfbær efni sem fengist hafa úr náttúrunni með samfélagslega ábyrgum hætti.