1 5

MANDUKA EVOLVE LEGGINGS - NAVY

MANDUKA EVOLVE LEGGINGS - NAVY

11.900 ISK
0 ISK 11.900 ISK
Uppselt
Stærð

Evolve Leggings eru léttustu æfingabuxur Manduka, en sérstaðan felst í þéttni efnisins og yfirborðsslípun sem gerir þær ofurmjúkar viðkomu („second skin“). Létt yfirbragð flíkurinnar er dregið fram með saumalausri hönnun að framan og á hliðunum, sem ennfremur eykur á þægindi. Loks er að finna innhverfan vasa á bakhlið buxnanna svo ekki þarf að hafa áhyggjur af persónulegum munum meðan á æfingu stendur.

Nánar um vöruna:

  • Mittishæðin veitir stuðning og aðhald sem mótar magasvæðið. 
  • Efnið andar vel og er afar teygjanlegt án þess að slakað sé á kröfum til endingarþols.
  • Tækni sem tryggir mestu mögulegu rakastjórnun og heldur svitalykt í skefjum, auk þess að hafa kælandi áhrif á húðina.
  • Búið til úr endurunnu plasti.

 

Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.

Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Allur fatnaður frá Manduka er búinn til úr endurunnu plasti í bland við sjálfbær efni sem fengist hafa úr náttúrunni með samfélagslega ábyrgum hætti.