1 4

MANDUKA EQUA® YOGA MAT (4MM) - BLUE DECORATION

MANDUKA EQUA® YOGA MAT (4MM) - BLUE DECORATION

13.900 ISK
13.900 ISK
Uppselt

Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar og eru jógadýnurnar þar fremstar í flokki, enda vinsælastar meðal jógakennara á heimsvísu. eQua® Yoga Mat er sérhönnuð fyrir jógatíma í heitum sal eða æfingar í röku umhverfi, þar sem notandi þarf ekki að hafa áhyggjur af því að renna til á dýnunni sinni. Ath. að gripið eykst eftir því sem dýnan verður þvalari og því óhætt að úða á hana vatni til að virkja viðnámstæknina.

Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Botninn á jógadýnunni er gerður úr trjágúmmíefni (Manduka eko®) en efra lagið er búið til úr ofurgleypnum örtrefjum sem gefa því eiginleika handklæðis (Manduka equa®). Hún bætir líkamsstöðu og jafnvægi jógaiðkandans með því að tryggja stöðugleika á hvaða yfirborði sem er.

Nánar um vöruna:

  • Dýnan er 4mm að þykkt og 105,5cm að flatarmáli (173 x 61). Hún vegur 2,3kg.
  • Fallegar teikningar gefa kost á að hafa dýnuna til skrauts á heimili jógaiðkandans.
  • Hentar vel á ferðalagi, við sjóströnd eða sundlaugarbakka, enda auðvelt að pakka dýnunni niður.
  • Handgerð í Taíwan úr náttúrulegum efnum sem ætlað er að endast ævilangt.