1 2

TEMPS DANSE AVA YOGI T-SHIRT - CARAIBES BLUE

TEMPS DANSE AVA YOGI T-SHIRT - CARAIBES BLUE

5.700 ISK
5.700 ISK
Uppselt
Stærð

Ava Yogi T-shirt er mjúkur stuttermabolur með þægilegu lausasniði, en þrengra mitti til að halda honum á sínum stað út æfinguna. Hann er djúphafsblár með hæverskri áletrun í gylltum stöfum („I am a Yogi“). Bolurinn er tilvalinn fyrir slökun og hugleiðslu, til jafns við virka hreyfingu. 

Nánar um vöruna:

  • Efnið býr yfir rakadrægni og heldur þannig líkamslykt í lágmarki.
  • Teygjanlegt efni sem endist og liturinn heldur sér í gegnum tímans rás. Ath. að allar vörur Temps Danse eru lausar við asóbensen-litarefni.
  • Flíkin er saumuð úr Livaeco-trefjum, vistvænni tegund af viskósi, sem styður við varðveislu vatnsbóla og skógarsvæða. Efnið er með FSC®-umhverfisvottun, brotnar niður lífrænt á stuttum tíma og dregur úr kolefnislosun.

 

Temps Danse er franskt vörumerki sem sérhæfir sig í fatnaði fyrir dansara og jógaiðkendur á mismunandi stigum. Fyrirtækið leggur ríka áherslau á gæðastaðla, bæði þegar kemur að efni og hönnun. Að auki hefur Temps Danse sett sér umhverfismarkmið við framleiðslu og hönnum, sem meðal annars er náð með því að nota efni úr plöntum og endurunnin klæði frá meginlandi Evrópu.