
Basic Socks frá SHASHI eru þægilegir ökklasokkar með griptækni undir iljunum, án þess að áferðin sé óslétt. Tæknin er einkaleyfisbundin og veitir eindæma fótfestu, frá tám til hæls, í æfingum sem krefjast stöðugleika og jafnvægis - á borð við jóga og pílates!
Nánar um vöruna:
- Hönnunin er sérsniðin að lögun fótarins og sokkarnir þess vegna merktir hægri/vinstri.
- Efnið er rakafráhrindandi og hefur kælandi áhrif (COOLMAX®). Sokkarnir halda fótum notandans þurrum, hreinum og svölum óháð aðstæðum.
SHASHI er hönnunarmerki sem sérhæfir sig í fallegum og notgóðum sokkum úr hágæðaefnum. Fyrirtækið hefur frá upphafi tileinkað sér framsýni í umhverfismálum og framleiðsluferlið endurspeglar það.