1 4

YOGA DEMOCRACY PRINTED LEGGINGS - HUMBLE WARRIOR

YOGA DEMOCRACY PRINTED LEGGINGS - HUMBLE WARRIOR

14.500 ISK
14.500 ISK
Uppselt
Size

Printed Leggings eru vinsælustu og mest einkennandi vörur Yoga Democracy. Buxurnar eru háar í mittið og saumarnir staðsettir til að styðja við lögun kvenlíkamans. „Humble Warrior“-mynstrið skartar fallegri teikningu af mandala, alheimstákninu, og aðrar myndir á buxunum endurspegla formin sem þar má finna.

Nánar um vöruna:

  • Búin til úr plastílátum, sem ella hefðu endað líf sitt á ruslahaug í hafinu.
  • Efnið verndar húðina fyrir útfjólubláum geislum sólarinnar, en prófun leiddi í ljós að vörnin virkar bæði gegn lengri bylgjum (UVA) sem flýta öldrunarferlinu og styttri bylgum (UVB) sem auka hættu á frumuskemmdum.
  • Tækni sem hrindir frá svita í tveimur skrefum, þ.e. 1) dregur raka að ytra lagi flíkurinnar og 2) stuðlar að hraðri uppgufun áður en svitanum gefst færi á að setjast í efnið.
  • Einnig hrindir efnið frá sér klóri og olíu, t.d. rakakremi eða sólaráburði, og öðru slíku sem komist getur í snertingu við buxurnar.
  • Léttleika efnisins er ætlað að halda húðinni svalri í gegnum erfiðustu æfingar. 
  • Teygjanleg án þess að efnið missi þann þéttleika sem varan státar af og gerir hana jafn endingargóða og raun ber vitni.
  • Litunarferli án eiturefna tryggir að mynstrið haldist samhliða langvarandi notkun.

 

Yoga Democracy hefur breytt markaðnum fyrir sjálfbæran íþróttafatnað með framúrstefnulegri hönnun, sem sækir innblástur í kjarnahugsjónir jógans um flæði milli umheimsins og innra sálarlífs iðkenda. Fyrirtækið endurvinnur hágæða plast, sem kemur úr drykkjarílátum og veiðinetum, og nýtir allt efnið sem úr því verður en hendir engu. Efnið er síðan litað með aðferð sem ekki þarfnast vatns og verndar þannig viðkvæmar auðlindir jarðarinnar. Framleiðslan á sér stað í heimabæ stofnenda Yoga Democracy í Arizona-fylki Bandaríkjanna og saumaferli hverrar flíkur hefst í höndum sömu manneskjunnar sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun. Loks rennur hluti söluágóðans til hinna ýmsu samtaka sem stuðla að bættum heimi fyrir fólk, dýr og umhverfið - í samræmi við æðri tilgang jógalífsins.