1 3

MANDUKA RESTORE JOGGER - MOONBEAM

MANDUKA RESTORE JOGGER - MOONBEAM

13.200 ISK
13.200 ISK
Uppselt
Size

Joggerbuxurnar frá Manduka eru ekki síður flottar en þægilegar, enda háar í mittið og flæðandi skálmar sem fara öllum vel. Einnig eru vasar með glitrandi saumi báðum megin. Buxurnar henta í léttar æfingar og rólegheit heima fyrir, til jafns við hversdagsleg tilefni árið í kring, og notagildi þeirra í því mikið. Ath. að þær parast vel við Manduka Rise and Shine Sweatshirt.

Nánar um vöruna:

  • Efnið líkir eftir silki og er ofurnotalegt. Það andar vel og dregur úr líkamslykt.
  • Mittisband með málmstykki á báðum endum eykur endingartíma flíkurinnar.
  • Búið til úr endurunnu palsti og módali, þ.e.a.s. lífrænu efni sem fæst með því að vefa beðmi af beykitré og krefst 10-20x minna vatnsmagns til framleiðslu en bómull.

 

Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.