1 4

MANDUKA PRESENCE LEGGINGS - FLORAL

MANDUKA PRESENCE LEGGINGS - FLORAL

13.500 ISK
13.500 ISK
Uppselt
Stærð

Presence Leggings eru smekklegar æfingabuxur sem henta fyrir fjölbreytt úrval af hreyfingu. Buxurnar eru styttar að neðan (63,5 cm innansaumur) og hafa vasa á sitthvorri hlið. Mittisbandið er þétt og sérstaklega ætlað að veita aðhald á magasvæði án þess að hamla flæði líkamans.

Nánar um vöruna:

  • Innanverðir saumar setja þægindi notandans í fyrsta sæti.
  • Efnið andar vel og þornar jafnóðum, sem heldur svitalykt í skefjum.
  • Búið til úr Sensil® sem telst einn sterkasti og mýksti manngerði efnisþráðurinn.

 

Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.

Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Allur fatnaður frá Manduka er búinn til úr endurunnu plasti í bland við sjálfbær efni sem fengist hafa úr náttúrunni með samfélagslega ábyrgum hætti.