1 3

MANDUKA ENLIGHT RELAXED TEE - DARK RED

MANDUKA ENLIGHT RELAXED TEE - DARK RED

9.900 ISK
9.900 ISK
Uppselt
Stærð

Enlight Relaxed Tee er léttur og snotur stuttermabolur sem bæði virkar til hversdagsnota og við æfingar, enda ræður efnið yfir tækni sem tryggir rakastjórnun. Bolurinn nær niður að miðjum mjöðmum og ermarnar eru í síðari kantinum þannig að hann hylur stærri svæði.

Nánar um vöruna:

  • Efnið andar vel og þornar jafnóðum, sem heldur svitalykt í skefjum.
  • Flíkin er teygjanleg án þess að slakað sé á kröfum til endingarþols.
  • Búin til úr efnum sem hafa umhverfisvottun frá OEKO-tex.


Manduka hefur í fimmtán ár veri leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.

Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Allur fatnaður frá Manduka er búinn til úr endurunnu plasti í bland við sjálfbær efni sem fengist hafa úr náttúrunni með samfélagslega ábyrgum hætti.