1 4

YOGA DEMOCRACY BALLET LONG SLEEVE - HUMBLE WARRIOR

YOGA DEMOCRACY BALLET LONG SLEEVE - HUMBLE WARRIOR

12.900 ISK
12.900 ISK
Uppselt
Verð með vsk.
Stærð

Langermabolurinn er nýjasta viðbótin við vinsælustu og mest einkennandi vörulínu Yoga Democracy. Toppurinn er stuttur að neðan og passar við mittishátt buxnasnið Yoga Democracy, en saman er flíkunum ætlað að fagna og draga athygli að lögun kvenlíkamans. Þá er á bakhlið bolsins op sem lokast með snoturri slaufu.

Hönnunin er innblásin af íþróttagreinum á borð við ballet, þar sem fínlegar hreyfingar eru í aðalhlutverki, en ástundunin krefst eigi að síður gríðarlegs styrks og liðleika. „Humble Warrior“-mynstrið skartar fallegri teikningu af mandala, alheimstákninu, og aðrar myndir á bolnum endurspegla formin sem þar má finna.

Nánar um vöruna:

  • Búin til úr plastílátum, sem ella hefðu endað líf sitt á ruslahaug í hafinu.
  • Efnið er sérlega mjúkt og léttleika þess ætlað að halda húðinni svalri í gegnum erfiðustu æfingar.
  • Tækni sem hrindir frá svita í tveimur skrefum, þ.e. 1) dregur raka að ytra lagi flíkurinnar og 2) stuðlar að hraðri uppgufun áður en svitanum gefst færi á að setjast í efnið.
  • Ennfremur er tæknin bakteríudrepandi sem minnkar hættu á að sviti lykti.
  • Teygjanleg án þess að efnið missi þann þéttleika sem varan státar af og gerir hana jafn endingargóða og raun ber vitni.
  • Litunarferli án eiturefna tryggir að mynstrið haldist samhliða langvarandi notkun.



Yoga Democracy hefur breytt markaðnum fyrir sjálfbæran íþróttafatnað með framúrstefnulegri hönnun, sem sækir innblástur í kjarnahugsjónir jógans um flæði milli umheimsins og innra sálarlífs iðkenda. Fyrirtækið endurvinnur hágæða plast, sem kemur úr drykkjarílátum og veiðinetum, og nýtir allt efnið sem úr því verður en hendir engu. Efnið er síðan litað með aðferð sem ekki þarfnast vatns og verndar þannig viðkvæmar auðlindir jarðarinnar. Framleiðslan á sér stað í heimabæ stofnenda Yoga Democracy í Arizona-fylki Bandaríkjanna og saumaferli hverrar flíkur hefst í höndum sömu manneskjunnar sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun. Loks rennur hluti söluágóðans til hinna ýmsu samtaka sem stuðla að bættum heimi fyrir fólk, dýr og umhverfið - í samræmi við æðri tilgang jógalífsins.