1 2

MANDUKA AURORA RACERBACK BRA - BLACK

MANDUKA AURORA RACERBACK BRA - BLACK

8.850 ISK
8.850 ISK
Uppselt
Stærð

Aurora Racerback er klæðilegur íþróttahaldari með hefðbundnu U-hálsmáli, tekinn saman að aftan, en mittislindi samsíða barminum ljær hönnuninni sérstöðu og gerir flíkina ákaflega aðlaðandi.

Nánar um vöruna:

  • Efnið er þétt en eigi að síður afar teygjanlegt og heimilar frjálsa hreyfingu án óþæginda, svo og án þess að slakað sé á kröfum um endingarþol fíkurinnar.
  • Yfirborðið er slípað og þar af leiðandi ofurmjúkt viðkomu. Flíkin er fóðruð meðferðis innanverðum teygjum til að hámarka aðhald.
  • Tækni sem tryggir mestu mögulegu rakastjórnun og hefur kælandi áhrif á húðina, sem gerir vöruna einkar heppilega fyrir jógaiðkun í heitum sal eða æfingar sem kalla fram svita.
  • Búið til úr efnum sem hafa umhverfisvottun frá OEKO-tex.
  • Hannað fyrir konur sem kjósa léttan eða miðlungs stuðning. ATH. Hentar einvörðungu skálastærðum A-C en Essence Bra frá Manduka veitir fleiri valkosti.

 

Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.

Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Allur fatnaður frá Manduka er búinn til úr endurunnu plasti í bland við sjálfbær efni sem fengist hafa úr náttúrunni með samfélagslega ábyrgum hætti.