1 4

YOGA DEMOCRACY BOUNDLESS LEGGINGS 7/8 MEÐ VÖSUM - JET BLACK

YOGA DEMOCRACY BOUNDLESS LEGGINGS 7/8 MEÐ VÖSUM - JET BLACK

15.900 ISK
15.900 ISK
Uppselt
Stærð

Boundless Leggings frá Yoga Democracy eru úr sérstöku „Endurance“-efni, sem er einkar endingargott og hannað fyrir hvers konar hreyfingu sem krefst mikils úthalds. Buxurnar ná niður að ökklum (63,5 cm innansaumur) og hafa vasa báðum megin. Þær eru háar í mittið, auk þess sem fíngert mynstur á ytri hliðum skapar ásýnd grennri fótleggja.

Nánar um „Endurance“-efnið:

  • Búið til úr þrettán drykkjarflöskum, sem ella hefðu endað líf sitt á ruslahaug í hafinu.
  • Tækni sem hrindir frá svita í tveimur skrefum, þ.e. 1) dregur raka að ytra lagi flíkurinnar og 2) stuðlar að hraðri uppgufun áður en svitanum gefst færi á að setjast í efnið.
  • Ennfremur er tæknin bakteríudrepandi sem minnkar hættu á að sviti lykti.
  • Léttleika efnisins er ætlað að halda húðinni svalri í gegnum erfiðustu æfingar. 
  • Hannað til að falla að líkamanum svo flíkin veiti stuðning og lyftingu á réttum stöðum.
  • Teygjanlegt án þess að efnið missi þann þéttleika sem einkennir vöruna og gerir hana jafn endingargóða og raun ber vitni. Litunarferli án eiturefna tryggir að mynstrið haldist samhliða langvarandi notkun.

 

Yoga Democracy hefur breytt markaðnum fyrir sjálfbæran íþróttafatnað með framúrstefnulegri hönnun, sem sækir innblástur í kjarnahugsjónir jógans um flæði milli umheimsins og innra sálarlífs iðkenda. Fyrirtækið endurvinnur hágæða plast, sem kemur úr drykkjarílátum og veiðinetum, og nýtir allt efnið sem úr því verður en hendir engu. Efnið er síðan litað með aðferð sem ekki þarfnast vatns og verndar þannig viðkvæmar auðlindir jarðarinnar. Framleiðslan á sér stað í heimabæ stofnenda Yoga Democracy í Arizona-fylki Bandaríkjanna og saumaferli hverrar flíkur hefst í höndum sömu manneskjunnar sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun. Loks rennur hluti söluágóðans til hinna ýmsu samtaka sem stuðla að bættum heimi fyrir fólk, dýr og umhverfið - í samræmi við æðri tilgang jógalífsins.