1 5

MANDUKA SPIRIT LEGGINGS - BLACK

MANDUKA SPIRIT LEGGINGS - BLACK

9.900 ISK
9.900 ISK
Uppselt
Stærð

Spirit Leggings frá Manduka eru klassískar í sniði og henta fyrir hreyfingu án hafta, hvort sem er innan eða utan líkamsræktarsalsins. Sér í lagi eru teygjurnar hannaðar til að falla að líkamanum án þess að skerast inn í húðina. Ekki eru heldur neinir utanverðir saumar sem þrengja að. Loks er vasi á innanverðu mittisbandinu svo ekki þarf að hafa áhyggjur af farsíma, skápalyklum eða öðrum eigum meðan á æfingu stendur.

Nánar um vöruna:

  • Mittishæðin veitir stuðning og skapar aðhald sem mótar magasvæðið án óþæginda.
  • Flíkin er teygjanleg án þess að slakað sé á kröfum til endingarþols.
  • Tækni sem tryggir mestu mögulegu rakastjórnun og heldur svitalykt í skefjum, auk þess að hafa kælandi áhrif á húðina.
  • Búið til úr endurunnu plasti.

 

Manduka hefur í fimmtán ár veri leiðandi við þróun jógabúnaðar en dýnurnar þeirra þykja af mörgum fremstar sinnar tegundar í heiminum. Fyrirtækið var sett á stofn með minnkun umhverfisfótspors textílgeirans að markmiði, einkum þess sem framleiðsla íþróttavarnings skilur eftir sig. Allur fatnaður frá Manduka er búinn til úr endurunnu plasti í bland við sjálfbær efni sem fengist hafa úr náttúrunni með samfélagslega ábyrgum hætti.

Hönnunin er hliðholl rótum sínum, með áherslu á jógaiðkun, og útkoman er sú að notandi vörunnar nær hámarksvirkni við hverja hreyfingu. Gæfumuninn gerir að sérhver vara eru hönnuð af reynslumiklum jógum sem láta sig varða mýkt og sveigjanleika efnisins. Næmleiki þeirra á þarfir iðkandans greinir Manduka frá öðrum vörumerkjum svo ekki verður um villst.