1 3

MANDUKA PRO™ YOGA MAT (6MM) - MULTI (PURPLE/ORANGE)

MANDUKA PRO™ YOGA MAT (6MM) - MULTI (PURPLE/ORANGE)

19.500 ISK
19.500 ISK
Uppselt
Manduka hefur í fimmtán ár verið leiðandi við þróun jógabúnaðar og eru jógadýnurnar þar fremstar í flokki, enda vinsælastar meðal jógakennara á heimsvísu. Pro™ Yoga Mats eru hannaðar með tækni sem Manduka hefur einkaleyfi til að nota og sömu gæðin fást því ekki hjá öðrum vörumerkjum.

Fyrst og fremst veitir dempunin í dýnunni óviðjafnanlegan stuðning við liðamót og stoðkerfi líkamans, auk stöðugleika á hvaða yfirborði sem er. Hið einstaka gripmynstur undir dýnunni tryggir síðan að hún haldist á gólfinu í gegnum jógarútínu notandans. Þá heimilar áferð yfirborðsins honum að flæða milli æfinga án þess að festast við dýnuna. Ath. að handklæðin frá Manduka auka gripið sem þörf kann að vera á í miklum raka.

Nánar um vöruna:
  • Dýnan er 6mm að þykkt og tæplega 120cm að flatarmáli (180,5 x 66). Hún vegur rúmlega 3kg.
  • Efnið er úr lokuðum einingum, sem kemur í veg fyrir að raki nái inn í dýnuna og valdi bakteríumyndun. Yfirborðið er mjög auðvelt að sótthreinsa með því að strjúka af dýnunni.
  • Hver jógadýna er handgerð í Þýskalandi úr efnum sem hafa fengið umhverfisvottun frá OEKO-TEX®️. Framleiðsluferlið hindrar að algeng eiturefni losni út í andrúmsloftið eða komist í snertingu við notanda dýnunnar.